Fara beint í efnið

Mannauðstorg ríkisins: Laun og kjaramál

Fatapeningar

Heimilt er að greiða fatapeninga á heilbrigðisstofnunum þar sem krafist er að starfsfólk noti eigin fatnað (hversdagslegan fatnað) vegna sérstakra meðferðarúrræða í stað vinnusloppa eða álíka hlífðarbúnaðar. Sjá kafla 8 í kjarasamningum. 

Fatapeningar eru að upphæð 3.908 kr. á mánuði (mars 2024) miðað við fullt starf í dagvinnu. Greiðsla þessi skal breytast á þriggja mánaða fresti í samræmi við verðlagsbreytingar. 

Launakerfið Orri / Vinnustund. Fatapeningar eða Fatapeningar fastir. 

Hægt er að setja inn fatapeninga inn í Vinnustund sem fasta forsendu.  

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

merki

Mannauð­s­torg ríkisins

Ábyrgðaraðilar síðunnar eru Kjara- og mannauðssýsla ríkisins og Mannauðs- og launasvið Fjársýslu ríkisins.