Fara beint í efnið

Hvernig virkar greiðsluþátttakan í næringu og sérfæði?

Gefnar eru út innkaupaheimildir vegna næringarefna og sérfæðis þar sem fram koma upplýsingar um hlutfall og hámarksupphæð á mánuði. Við kaup er kennitala einstaklings gefin upp hjá seljanda sem flettir heimild upp í Gagnagátt. Einstaklingar greiða sinn hlut beint til seljanda þegar það á við. Seljendur senda Sjúkratryggingum reikning vegna kaupa.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?