Fara beint í efnið

Er hægt að sækja um styrk til kaupa á næringardrykkjum?

Já, hægt er að sækja um styrk til kaupa á næringardrykkjum, almennum eða sérhæfðum t.d. vegna sykursýki eða nýrnabilunar. Læknir, næringarfræðingur eða annar heilbrigðisstarfsmaður metur þörf og sendir umsókn.

Styrkirnir eru 90% með ákveðinni hámarksupphæð á mánuði. Hámarksupphæðir innkaupaheimilda og reglur um í hvaða tilfellum styrkur er samþykktur má finna í reglugerð um styrki til kaupa á næringarefnum og sérfæði.

Einstaklingar með innkaupaheimild geta keypt næringardrykki/duft á samningsverði hjá Fastus ehf. og Icepharma hf. (dreifingaraðili: Parlogis, Krókhálsi 14). Ávinningur fyrir notendur gæti verið hagstæðara verð en einnig er heimilt að kaupa næringardrykki/duft hjá öðrum seljendum.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?