Fara beint í efnið

Er hægt að sækja um styrk til kaupa á nema sem skanna/sírita blóðsykur?

Já, slíkir nemar eru niðurgreiddir fyrir einstaklinga með sykursýki týpu 1. Fyrsta umsókn þarf að koma frá innkirtlasérfræðingi en umsókn um endurnýjun getur einnig komið frá hjúkrunarfræðingi á göngudeild innkirtla og efnaskipta á Landspítala (LSH). Upplýsingar um tegund nema þurfa að fylgja með í umsókn.

Samningar um nema eru við:

  • AZ Medica (Guardian nemar), Skemmuvegi 6, 200 Kópavogi, sími 564-5055

  • Fastus (Dexcom nemar), Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 580-3900

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?