Fara beint í efnið

Ég nota nema sem skannar/síritar blóðsykur, hvað fæ ég marga blóðstrimla og blóðhnífa niðurgreidda?

Samþykkt magn blóðstrimla og blóðhnífa fer eftir því hvaða tegund af nema er notuð og hvort að insúlíndæla sé einnig notuð samhliða Guardian nemum.

Fyrir þá sem nota Guardian nema eru 750 stykki blóðstrimla/blóðhnífa á 12 mánaða tímabili niðurgreiddir en 2.500 stykki ef insúlíndæla er einnig notuð.

Fyrir þá sem nota Dexcom nema eru 200 stykki blóðstrimla/blóðhnífa á 12 mánaða tímabili niðurgreiddir.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?