Fara beint í efnið

Af hverju var umsókn um spelku frestað?

Skýringuna er að finna í svarbréfinu en það birtist í Réttindagátt einstaklings daginn eftir að umsókn er afgreidd. Svarbréfið má einnig nálgast í stafrænu pósthólfi á Ísland.is.

Ef upplýsingar vantar um val á spelku þarf að leita til fyrirtækja sem eru með samninga og fá aðstoð við val á spelku. Sjá upplýsingar um hvaða seljendur eru með samning og vörulista á sjukra.is

Hægt er að senda upplýsingar í gegnum Gagnaskil einstaklinga (tegund skila: Stoð- og meðferðartæki). Umsóknin verður tekin upp að nýju þegar upplýsingarnar sem vantaði berast.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?