Fara beint í efnið

Hver eru sérstök skilyrði fyrir umsækjendur um vistráðningu sem koma beint frá Filippseyjum?

Filippseysk stjórnvöld gera sérstaka kröfu á filippseyska borgara sem hyggjast flytja úr landi og verða þeir að sækja um svokallað "exit permit" frá þarlendum stjórnvöldum.

Það athugist að þetta eru ekki reglur eða kvaðir sem Útlendingastofnun setur heldur skilyrði frá filippseyskum stjórnvöldum og Útlendingastofnun hefur því ekki frekari upplýsingar eða milligöngu um þetta ferli.

Vitað er að frumrit vistráðningarsamning þarf að vera vottað og því er frumrit samnings sett í afgreiðslu við veitingu dvalarleyfi til afhendingar ef viðkomandi er búsettur á höfuðborgarsvæðinu.

Vistfjölskylda þarf að fara með vistráðningarsamninginn til sýslumanns og fá staðfestan – ef þau eru hjón þá þurfa bæði að mæta og hafa vegabréf meðferðis ásamt ljósriti af vegabréfi væntanlegs au pair.

Því næst þarf að fara með samninginn í utanríkisráðuneytið – Rauðarárstíg 25 (almenn afgreiðsla opin frá 08:30-16:00).

Loks þarf að senda samninginn til sendiráðs Filippseyja í Osló til frekari vottunar.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

Útlendingastofnun

Þjónustuver

Afgreiðslan er opin 9 - 14 alla virka daga Þjónustuverið er opið mán - fim: 9 - 14 & fös 9 - 12

Dalvegur 18, 201 Kópavogi (sjá kort)

Netspjall

Sendu okkur línu

Sími +354 444 0900