Fara beint í efnið

Hvenær get ég sótt um ótímabundið dvalarleyfi?

Almenna reglan er sú að til að eiga rétt á ótímabundnu dvalarleyfi þarftu að hafa dvalið á Íslandi á dvalarleyfi, sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis, í 4 ár samfellt.

Í eftirtöldum tilvikum eiga undanþágur við

  • Maki íslensks ríkisborgara getur sótt um ótímabundið dvalarleyfi eftir þrjú ár á dvalarleyfi fyrir maka.

  • Barn íslensks ríkisborgara getur sótt um ótímabundið dvalarleyfi eftir að hafa haft dvalarleyfi samfellt í 2 ár fyrir framlagningu umsóknar. Foreldrið þarf að hafa verið íslenskur ríkisborgari í 5 ár.

  • Erlendur ríkisborgari sem hefur lokið doktorsnámi á Íslandi og hefur haft dvalarleyfi á grundvelli sérfræðiþekkingar í minnst 3 ár fyrir framlagningu umsóknar.

  • Erlendur ríkisborgari sem hefur haft dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis í að minnsta kosti 2 ár og hefur áður dvalið hér á landi í samfelldri dvöl samkvæmt dvalarleyfi vegna náms, þannig að heildardvöl sé að minnsta kosti 4 ár.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

Útlendingastofnun

Þjónustuver

Afgreiðslan er opin 9 - 14 alla virka daga Þjónustuverið er opið mán - fim: 9 - 14 & fös 9 - 12

Dalvegur 18, 201 Kópavogi (sjá kort)

Netspjall

Sendu okkur línu

Sími +354 444 0900