Ellilífeyrir
Áhrif lífeyrissjóðstekna á ellilífeyri frá TR
Á Íslandi greiða allir launþegar og sjálfstætt starfandi einstaklingar á aldrinum 16-70 ára skyldubundið iðgjald í lífeyrissjóð, slíkt iðgjald fer í samtryggingarkerfi. Iðgjaldið nemur að lágmarki 15,5% af heildarlaunum og skiptist jafnan milli launþega og atvinnurekanda.
Samtrygging felur í sér að sjóðfélagar standa sameiginlega að því að tryggja hver öðrum lífeyri til æviloka. Jafnframt er markmiðið að verja sjóðfélaga og fjölskyldur þeirra gegn tekjutapi sem getur orðið vegna örorku eða andláts.
Einnig er hægt að velja að hluti af þessu iðgjaldi fari í séreign, algengust er svokölluð tilgreind séreign en einnig eru sumir lífeyrissjóðir með frjálsa eða bundna séreign.
Lífeyrisgreiðslur sem fólk fær úr þessu kerfi, það er bæði samtryggingu og séreign, hafa áhrif á upphæð ellilífeyrisgreiðslna frá TR til lækkunar.
Greiðslur sem hafa áhrif á ellilífeyrisgreiðslur frá TR:
Samtrygging
Samtrygging er hluti af skylduiðgjaldi og hefur því áhrif á greiðslur frá TR. Sækja þarf um greiðslu samtryggingar áður en sótt er um lífeyri hjá TR.
Frjáls séreign, bundin séreign og tilgreind séreign
Séreign er hluti af skylduiðgjaldi og hefur því áhrif á greiðslur frá TR til lækkunar. Ekki er þó gerð krafa um að sótt sé um frjálsa og tilgreinda séreign þegar sótt er um ellilífeyri hjá TR en gerð er krafa um að sótt sé um bundna séreign.
Hér eru nánari útskýringar á hvernig séreignarútgreiðslur virka almennt hjá lífeyrissjóðum en athugið að heitin á séreignarsparnaðinum geta verið mismunandi eftir sjóðum:
Bundin séreign
Almennt laus til mánaðarlegar útborgunar frá 60 ára aldri og erfist að fullu.
Borguð út mánaðarlega með jöfnum greiðslum.
Þarf að sækja um samhliða ellilífeyri hjá TR.
Tilgreind séreign
Almennt laus til útborgunar frá 62 ára aldri og erfist að fullu.
Ekki borguð út mánaðarlega með jöfnum greiðslum til æviloka, sveigjanleiki er í úttekt.
Þarf ekki að sækja um samhliða ellilífeyri hjá TR.
Frjáls séreign
Almennt laus til útborgunar frá 60 ára aldri og erfist að fullu.
Ekki borguð út mánaðarlega með jöfnum greiðslum til æviloka, sveigjanleiki er í úttekt.
Þarf ekki að sækja um samhliða ellilífeyri hjá TR.
Greiðslur sem hafa ekki áhrif á ellilífeyrisgreiðslur frá TR:
Viðbótarlífeyrissparnaður
Viðbótarlífeyrissparnaður, hjá sumum sjóðum kallaður séreignarsparnaður, er valfrjáls sparnaður til viðbótar við skyldubundin iðgjöld í lífeyrissjóð þar sem launþegi greiðir 2% eða 4% og launagreiðandi greiðir 2% á móti. Úttekt á þessum sparnaði hefur engin áhrif á greiðslur ellilífeyris frá TR fyrir utan eina undatekningu, þau sem fá viðbótargreiðslur til fólks með takmörkuð ellilífeyrisréttindi þurfa að tilgreina greiðslur viðbótarlífeyrissparnaðar í tekjuáætlun því upphæð viðbótarstuðnings er tekjutengd og allar tekjur hafa áhrif á útreikning hans.
Áhrif tekna á ellilífeyri - algengar spurningar
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun