Svona sækir þú um
Smelltu á Sækja um
Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum
Veldu Umsóknir
Veldu umsóknina Ellilífeyri
Fylltu út umsóknina og hengdu við fylgigögn ef þú ert með þau tiltæk
Smelltu á Senda umsókn
Einnig er hægt að sækja um:
í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar,
hjá umboðsmönnum, sem eru staðsettir hjá sýslumönnum um land allt.
Staða umsóknar
Þú getur fylgst með stöðu umsóknar á Mínum síðum Tryggingastofnunar.
Þar getur þú líka fundið leyninúmerið þitt. Það er notað í samskiptum við TR í síma.
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun