Ellilífeyrir
Orlofs- og desemberuppbætur
Orlofsuppbót er greidd árlega 1. júlí og desemberuppbót 1.desember. Báðar uppbæturnar eru greiddar samhliða mánaðarlegum greiðslum til viðskiptavina TR.
Uppbótin er ákveðin ár hvert í reglugerð um orlofs- og desemberuppbætur. Af þeirri upphæð greiðast 40% sem orlofsuppbót og 60% sem desemberuppbót. Greiðslurnar miðast við fjölda mánaða sem viðkomandi fékk greiddan ellilífeyri á árinu Þau sem fá hálfan ellilífeyri fá samsvarandi helming uppbótarinnar.
Desemberuppbót er tekjutengd, rétt eins og aðrar greiðslur ellilífeyris.
Fjárhæðin í ár er: 137.857 krónur
Síðast yfirfarið: 14. október 2026
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun