Fara beint í efnið

Einstaklingur á örorkulífeyri verður 67 ára

Greiðslur vegna örorkulífeyris eru greiddar þar til einstaklingur verður 67 ára. Við þau tímamót breytast greiðslur yfir í ellilífeyrisgreiðslur án þess að viðkomandi þurfi að aðhafast nokkuð. Þetta gildir þó ekki um þá sem eru búsettir erlendis þar sem skoða þarf möguleg lífeyrisréttindi í því landi sem viðkomandi er með lögheimili í.

Hins vegar er hægt að fresta töku ellilífeyris en óska þarf sérstaklega eftir því með því að senda okkur erindi í gegnum Mínar síður. Þá hafa tekjur sem aflað er frá því að viðkomandi hætti að fá örorkulífeyrisgreiðslur og þar til sótt er um ellilífeyri ekki áhrif á útreikning greiðslna TR.

Við frestun ellillífeyris falla allar greiðslur frá TR niður þar til sótt er um að nýju.

Á þessum tímamótum er mikilvægt að fara vel yfir allar forsendur og skoða hvort tilefni er til að fresta töku lífeyris með tilliti til breytinga á tekjum. Að sama skapi er mikilvægt að fara vel yfir tekjuáætlun til að tryggja að hún sé í samræmi við þær tekjur sem viðkomandi fær samhliða greiðslum frá TR.

Fjárhæðir og frítekjumörk ellilífeyris

Gott er að nýta reiknivél TR til að skoða mögulegar ellilífeyrisgreiðslur miðað við þínar forsendur og tekjur.

Upplýsingar um fjárhæðir og frítekjumörk ellilífeyris má finna á upplýsingasíðunni um ellilífeyri.

Gott að vita

Athugaðu hvort það sé réttur á viðbótargreiðslum svo sem:

eða

Einstaklingar með örorkulífeyri eiga rétt á niðurfellingu bifreiðagjalda og sá réttur helst þegar þeir færast yfir á ellilífeyri. Niðurfellingin ætti að koma sjálfkrafa en ef ekki þá er sótt um til Skattsins.

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun