Hægt er að sækja um samræmda Schengen-áritun til Íslands í þeim löndum og borgum sem talin eru upp í listanum hér að neðan. Smella þarf á viðkomandi land (+) til að sjá nánari upplýsingar um útgáfustaði.
Athugið að sendiráðin og ræðisskrifstofurnar á listanum gefa aðeins út vegabréfsáritanir til stuttrar dvalar (e. short-stay visa og hér eftir „C-áritun“), til dæmis fyrir ferðamenn, fjölskylduheimsóknir, opinber erindi, viðskiptaheimsóknir og námsferðir.
Þessi listi á ekki við um útgáfu D-áritana, sem gefnar eru út til einstaklinga sem Útlendingastofnun hefur veitt dvalarleyfi á Íslandi. Upplýsingar um útgáfustaði D-áritana er að finna hér.
Sendiráð og ræðisskrifstofur sem veita C-áritanir til Íslands
Þjónustuaðili
Utanríkisráðuneytið