Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Frá 1. janúar 2026 skal greiða kílómetragjald mánaðarlega af öllum ökutækjum, óháð orkugjafa. Gjaldið ræðst af þyngd ökutækis.

Eigendur rafmagns-, tengiltvinn- og vetnisbifreiða sem skráð hafa kílómetrastöðu síðastliðin 2 ár halda áfram að skrá kílómetrastöðu að minnsta kosti einu sinni á ári.

Mikilvægar dagsetningar fyrir fyrstu skráningu

  • 1. apríl 2026 - Vanskráningargjald
    Vanskráningargjald að upphæð 20.000 kr. leggst á þá sem ekki hafa skráð kílómetrastöðuna. Ef engin skráning hefur verið gerð fyrir 1. apríl verður að fara með bílinn á skoðunarstöð til að láta lesa af mælinum. Vanskráningargjald fellur niður ef þú mætir á skoðunarstöð innan 30 daga frá álagningu gjaldsins.

Gjald

Gjaldið er 6,95 krónur á hvern kílómetra fyrir bifreiðar og jeppa upp í 3,5 tonn.

Gjaldið er stighækkandi eftir þyngd ökutækis.

Sjá nánar um gjald, gjaldskyldu og undanþágur:

Skráning kílómetrastöðu

Gjaldtakan er mjög áþekk því sem tíðkast í veitureikningum fyrir rafmagn og heitt vatn. Áætlun á þínum meðalakstri byggir á þínum skráningum. Innheimt er samkvæmt áætlun þangað til þú skráir næst. Við hverja skráningu verður til ný áætlun á meðalakstri og um leið er gert uppgjör fyrir liðin tímabil.

Hægt er að skrá:

Leiðrétting á rangri skráningu

Ef þú skráir ranga tölu getur þú skráð aftur sama dag og þá gildir seinni talan. Á miðnætti lokast fyrir skráningar næstu 30 daga.

Ef ekki næst að leiðrétta skráninguna innan dagsins og of há kílómetrastaða skráð þarf að fara með ökutækið í álestur á skoðunarstöð til þess að skrá inn rétta stöðu.

Síðan þarf að skrá aftur 30 dögum síðar á Ísland.is til þess að hafa tvær réttar skráningar frá þeirri röngu.

Mánaðarleg greiðsla

Áætlun á meðalakstri

Fjárhæð kílómetragjalds byggir á áætlun á þínum meðalakstri sem unnin er út frá þeim gögnum sem til eru.

  • Ef þú átt tvær skráningar á kílómetrastöðu er áætlunin byggð á meðalakstri þínum á því tímabili. Dæmi: Ef meðaltalið á síðasta tímabili var 30 km/dag þá er gert ráð fyrir að þú haldir áfram að keyra 30 km/dag og þú færð reikning miðað við það.

  • Ef þú átt ekki tvær skráningar er rukkað samkvæmt áætlun ríkisskattstjóra á meðalakstri.

Yfirlit yfir skráningu kílómetragjalds er hægt að skoða á Mínum síðum.

Greiðsla samkvæmt áætlun

Greiðslan er mánaðarleg bráðabirgðagreiðsla fram að næstu skráningu.

Gjaldið er eftirágreitt og greiðist mánaðarlega. Greiðsluseðill er sendur í netbanka.

Gjalddagi og eindagi

Gjalddagi greiðslu samkvæmt áætlun á meðalakstri er fyrsti dagur hvers mánaðar og eindagi 14 dögum síðar. Ef eindagi lendir á frídegi færist hann yfir á næsta virka dag. Dráttarvextir reiknast frá eindaga.

Ef kílómetragjald er ógreitt á eindaga getur þú ekki farið með ökutækið í aðalskoðun. Lögreglu er heimilt að taka númeraplötur af ökutækinu til geymslu þangað til gjaldið hefur verið greitt.

Uppgjör

Álagning byggð á raunakstri

Þegar þú skráir kílómetrastöðu fer fram uppgjör sem leiðréttir greiðslurnar þínar aftur í tímann. Gerður er upp mismunur á áætluðum akstri og raunakstri á tímabilinu.

Dæmi: Ef liðnir eru 100 dagar milli skráninga og þú keyrðir 4.000 km, þá er meðalaksturinn 40 km á dag á tímabilinu.

  • Ef áætlunin gerði ráð fyrir að meðalaksturinn væri 50 km/dag þá áttu inneign. Ef þú skuldar ríkissjóði þá gengur inneignin upp í skuldina.

  • Ef áætlunin byggði á að meðalaksturinn væri 30 km/dag þá hefur þú greitt of lítið og færð reikning fyrir mismuninum.

Ef þú skráir ekki innan tímamarka hækkar áætlun á meðakstri frá þeim tíma samkvæmt áætlun ríkisskattstjóra.

Uppgjörsgreiðsla

Við hverja skráningu á kílómetrastöðu fer fram uppgjör byggt á raunakstri frá síðustu skráningu.

Gjaldið er eftirágreitt og greiðsluseðill er sendur í netbanka.

Tveir reikningar

Ef áætlun á meðalakstri var of lág á síðasta tímabili berast tveir reikningar eftir að uppgjör hefur farið fram:

  • Reikningur fyrir því sem upp á vantaði miðað við raunakstur á síðasta tímabili.

  • Reikningur samkvæmt nýrri áætlun á meðalakstri.

Gjalddagi og eindagi

Gjalddagi við uppgjör er fyrsti dagur annars mánaðar eftir síðustu skráningu og eindagi 14 dögum síðar. Ef eindagi lendir á frídegi færist hann yfir á næsta virka dag. Dráttarvextir reiknast frá eindaga.

Dæmi: Ef þú skráir 24. mars þá er áætlun fyrir mars gerð út frá þeirri skráningu. Uppgjör fyrir tímabilin frá síðasta álestri til mars berst 1. apríl.

Greiðandi

Skráður eigandi er almennt sá sem ber ábyrgð á greiðslu gjaldsins.

Ef bifreið er á leigusamningi (svo sem fjármögnunarleigu eða langtímaleigu) færist gjaldskyldan yfir á skráðan umráðamann í ökutækjaskrá.

Eigandi og umráðamaður bera þó óskipta ábyrgð á greiðslu kílómetragjalds, sektum og öðrum kostnaði, sem þýðir að innheimtumaður getur gengið að hvorum aðilanum sem er.

Þau sem fá bifreiðagjald fellt niður á grundvelli greiðslna frá Tryggingastofnun eru ekki undanþegin greiðslu kílómetragjalds.

Leiðréttingar, viðurlög og sérstakar reglur

Hafðu samband

Ertu með fyrirspurn um kílómetragjald? Sendu okkur línu á km@skatturinn.is

Skrá stöðu á kílómetramæli á Mínum síðum

Þjónustuaðili

Skatt­urinn