Gjald
Kílómetragjald fyrir bifhjól er 4,15 kr á hvern ekinn kílómeter.
Gjaldskyld bifhjól
Bifhjól sem eru undir 400 kg og uppfylla eftifarandi:
Bifhjól:
Vélknúin ökutæki á tveimur eða fleiri hjólum, með sprengirými yfir 50 cm³ (ef brunahreyfill) og hönnuð til að aka hraðar en 45 km/klst,.
Létt bifhjól:
Ökutæki sem aka hraðar en 25 km/klst en ekki hraðar en 45 km/klst (til dæmis skellinöðrur).
Ökutæki undanþegin kílómetragjaldi
Nokkrar tegundir ökutækja eru undanþegin greiðslu kílómetragjalds, þar á meðal:
Ökutæki björgunarsveita sem eru sérmerktar og eingöngu notaðar í þágu þeirra.
Ökutæki með fyrstu skráningu 1. janúar 1965 eða fyrr og sýnt er fram á að ökutæki hafi aldrei verið með akstursmæli, ekki sé hægt að koma akstursmæli fyrir eða ekki sé hægt að lagfæra hann.
Ökutæki erlendra sendiráða sem eru merkt sem slík í ökutækjaskrá eða með viðeigandi skráningarmerki.
Ertu með fyrirspurn um kílómetragjald? Sendu okkur línu á km@skatturinn.is

Þjónustuaðili
Skatturinn