Fara beint í efnið

Skilyrði fyrir komu útlendinga til Íslands

Það gilda ólíkar reglur um heimildir útlendinga til að koma til og dvelja á Íslandi eftir því hvaða ríkisfang þeir hafa.

EES/EFTA-borgarar

EES/EFTA-borgarar þurfa við komuna til Íslands að hafa meðferðis gild ferðaskilríki eða kennivottorð sem heimila þeim för yfir landamæri. Ferðaskilríkin þurfa að hafa gildistíma umfram dvöl þeirra á Íslandi.

EES/EFTA-borgarar sem vilja dvelja lengur en 6 mánuði á Íslandi þurfa að fylla út umsókn um skráningu í Þjóðskrá.

Norrænir ríkisborgarar

Ríkisborgarar Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar eru undanþegnir kröfunni um að hafa meðferðis gild ferðaskilríki eða kennivottorð við ferðalög milli Íslands og þessara landa. Athugið að undanþágan á aðeins við um för yfir landamæri en hefur ekki áhrif á skilríkjakröfur flugfélaga.

Ríkisborgarar ríkja utan EES/EFTA-svæðisins

Ríkisborgarar ríkja utan EES/EFTA-svæðisins þurfa við komuna til Íslands að hafa meðferðis gild ferðaskilríki eða kennivottorð sem heimila þeim för yfir landamæri. Ferðaskilríki eða kennivottorð þeirra þurfa að

  • hafa gildistíma í minnst þrjá mánuði umfram áætlaðan brottfarardag og

  • hafa verið gefin út á síðastliðnum 10 árum.

Til að mega dvelja á Schengen-svæðinu, þar með talið Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili, þurfa ríkisborgarar ríkja utan EES/EFTA-svæðisins að auki að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Hafa gilda vegabréfsáritun - nema þeir séu undanþegnir áritunarskyldu eða handhafar dvalarleyfis sem gefið er út af öðru EES/EFTA-ríki.

  • Geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar.

  • Hafa nægt fé til framfærslu, bæði meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til þess að snúa aftur til upprunalands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt.

  • Ekki vera skráðir í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina þeim komu til landsins.

  • Ekki vera taldir ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis.

kisborgarar ríkja utan EES/EFTA-svæðisins sem vilja dvelja lengur en 90 daga á Íslandi þurfa að sækja um dvalarleyfi.

Tvíhliða samningar um framlengda dvöl

Á grundvelli tvíhliða samninga er ríkisborgurum tiltekinna ríkja þó heimilt að dvelja á Íslandi í allt að 3 mánuði umfram þá 90 daga sem þeim er heimilt að dvelja á Schengen-svæðinu. Hér eru upplýsingar um hvaða lönd þetta eru.

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun