Kæra synjun um vegabréfsáritun til Íslands
Synji utanríkisráðuneytið umsókn um vegabréfsáritun, getur umsækjandi kært synjun til úrskurðarnefndar um áritanamál með tölvupósti á appeals@utn.is.
Að kæra synjun um vegabréfsáritun
Kæra þarf synjun um vegabréfsáritun innan 30 daga frá því að umsækjanda var tilkynnt um ákvörðunina.
Kæra er skriflega rökstudd greinargerð á íslensku þar sem fram þarf að koma
tilvísunarnúmer (ISL-númer sem kemur fram efst á synjanablaði),
fullt nafn umsækjanda,
ríkisfang,
dagsetning synjunarinnar
Fylgigögn: Afrit af kvittun fyrir greiðslu málskotsgjalds.
Ekki þarf að leggja fram önnur fylgigögn þar sem úrskurðarnefndin byggir afgreiðslu mála eingöngu á þeim gögnum sem lágu fyrir þegar stjórnvaldsákvörðun var tekin.
Kostnaður við kæru
Málskotsgjald er 300 evrur (EUR). Greiða skal gjaldið með millifærslu á eftirfarandi reikning utanríkisráðuneytisins:
Fyrir greiðslur frá Íslandi:
Kt. 6702694779
Reikningsnúmer: 0303-26-001329Fyrir erlendar millifærslur:
Beneficiary name: Utanríkisráðuneytið / Ministry for Foreign Affairs
Beneficiary address: Reykjastræti 8, 101 Reykjavík, Iceland
IBAN: IS290303260013296702694779
SWIFT: ESJAISRE
Bank name: Arion banki hf.
Bank address: Borgartúni 19, 105 Reykjavík, Iceland
Synjun umsóknar um vegabréfsáritun til Íslands af hálfu fyrirsvarsríkis
Ef erlent sendiráð synjar umsókn um vegabréfsáritun fyrir hönd íslenskra stjórnvalda, getur umsækjandi kært þá ákvörðun í samræmi við landslög viðkomandi fyrirsvarsríkis samkvæmt leiðbeiningum í synjunarbréfi.
Kærur vegna slíkra ákvarðana eru því ekki lagðar fram hjá íslenskum stjórnvöldum heldur hjá því ríki sem tók ákvörðunina. Ef gestgjafi vill kæra ákvörðun fyrir hönd umsækjanda, verður hann að hafa skriflegt umboð til þess.
Þjónustuaðili
Utanríkisráðuneytið