Sækja um vegabréf
Þú getur sótt um nýtt vegabréf fyrir þig og einstaklinga í þinni forsjá á vef sýslumanna. Í umsókninni forskráir þú upplýsingar, greiðir fyrir vegabréfið og þarft svo aðeins að mæta í myndatöku hjá embætti sýslumanna til að hægt sé að gefa út vegabréfið.
Afgreiðslutími vegabréfa er allt að 4 virkir dagar frá myndatöku. Sendingartími bætist við afhendingartíma fyrir umsækjendur á landsbyggðinni.
Stafræn umsókn 18 ára og eldri
Til að sækja um stafrænt þarf umsækjandi að:
Vera með rafræn skilríki
Gildistími núverandi vegabréfs, þarf að vera minni en 6 mánuðir.
Mæta í myndatöku innan 30 daga. Hægt er að bóka tíma á höfuðborgarsvæðinu.
Stafræn umsókn fyrir barn yngra en 18 ára
Ef tveir aðilar fara með f.orsjá barns þurfa:
Báðir forsjáraðilar að vera með rafræn skilríki.
Annar forsjáaðili sækir um vegabréfið fyrir barn og greiðir. Hinn forsjáraðilinn fær sjálfkrafa beiðni um að samþykkja umsóknina á Ísland.is undir Mínar umsóknir. Samþykkið þarf að berast innan 7 daga, annars rennur umsókn út og er endurgreidd sjálfkrafa til greiðanda.
Báðir aðilar að veita samþykki fyrir útgáfu nýs vegabréfs.
Mæta í myndatöku innan 30 daga á umsóknarstaði sýslumanna um land allt. Hægt er að bóka tíma á höfuðborgarsvæðinu.
Nóg er að annar forsjáraðilinn mæti með barni undir 18 ára. Forsjáraðili þarf að sýna skilríki. Ef þriðji aðili kemur með barninu þar hann að framvísa umboði.
Myndataka
Þegar komið er í myndatöku þarf að framvísa löggildu skilríki, eldra vegabréfi, íslensku ökuskírteini eða nafnskírteini.
Ef ekki er mætt í myndatöku innan 30 daga, eða hætt er við umsókn að þeim tíma liðnum, þarf umsækjandi sjálfur að óska eftir endurgreiðslu á endurgreidsla@island.is.
Umsókn hjá sýslumanni, fullorðnir og börn
Sækja þarf um hjá sýslumanni og greiða á staðnum ef gildistími núverandi vegabréfs er lengri en 6 mánuðir
Ef sótt er um fyrir barn þarf skriflegt samþykki allra forsjáraðila.
Komist annar forsjáraðili ekki á umsóknarstað þarf hann að fylla út eyðublað V-901 í viðurvist tveggja votta sem einnig rita nafn sitt á skjalið. Hinn forsjáraðilinn tekur það með sér á umsóknarstað.
Mæti báðir forsjáraðilar á umsóknarstað er eyðublað V-901 fyllt út þar.
Forsjáraðilar geta veitt 3ja aðila umboð til að sækja um vegabréf. Þá skal fylla út eyðublað V-901 ásamt fylgiskjali.
Ef umsækjandi á ekki opinbert skilríki eins og vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini þarf hann að:
mæta til sýslumanns.
fylla út eyðublað um sannvottun einstaklings.
koma með tvo vitundavotta sem staðfesta hver hann er.
Vitundavottar þurfa að hafa með sér opinbert skilríki (vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini).
Hvar er hægt að sækja um vegabréf:
Hjá sýslumönnum.
Í ákveðnum sendiráðum erlendis.
Ræðismenn Íslands erlendis geta eingöngu gefið út neyðarvegabréf en geta ekki tekið við umsóknum um almenn vegabréf.
Afhending og afgreiðslutími
Afgreiðslutími vegabréfa er allt að 4 virkir dagar frá því að umsókn berst. Sendingartími bætist við afhendingartíma fyrir umsækjendur á landsbyggðinni.
Hægt er að fá vegabréf afhent á fjóra vegu:
Sótt í afgreiðslu Þjóðskrár, Borgartúni 21, 105 Reykjavík. Opnunartími er frá kl. 10-15 alla virka daga.
Sótt á umsóknarstað á sýsluskrifstofum um allt land.
Sótt í Hagkaup, Skeifunni 15, 108 Reykjavík. Opnunartími er allan sólarhringinn. Verður að sækja innan 7 daga frá því að vegabréf berst (Athugið að það verður að vera búið að ógilda eldra vegabréf í afgreiðslu/umsókn á því nýja).
Erlendis í sendiráði eða ræðismanni.
Þegar vegabréf barna eru sótt þarf forsjáraðili að sýna skilríki. Börn þurfa ekki að koma með. Ef þriðji aðili sækir vegabréf fyrir barn þarf hann að framvísa umboði.
Ef annar en umsækjandi sækir vegabréf þarf hann að framvísa umboði frá eiganda vegabréfsins, óháð hjúskaparstöðu eða tengslum.
Kostnaður
Almenn afgreiðsla vegabréfa:
18 til 66 ára: 14.000 krónur.
Börn, aldraðir, öryrkjar: 6.000 krónur.
Hraðafgreiðsla:
18 til 66 ára: 28.000 krónur.
Börn, aldraðir, öryrkjar: 12.000 krónur.
Þjónustuaðili
Sýslumenn