Sækja um vegabréfsáritun til Íslands (Schengen-áritun)
Áritun fyrir margar komur
Hægt er að fá útgefna vegabréfsáritun sem heimilar fleiri en eina komu inn á Schengen-svæðið á gildistíma áritunarinnar. Gildistíminn getur verið frá sex mánuðum til fimm ára.
Þrátt fyrir það má viðkomandi ekki dvelja lengur en samanlagt 90 daga á 180 daga tímabili á Schengen-svæðinu.
Áritun fyrir fleiri en eina komu er almennt ekki veitt í fyrsta sinn sem sótt er um áritun.
Skilyrði
Umsækjandi þarf að sýna fram á
að hann þurfi að ferðast oft og/eða reglulega, einkum vegna starfs síns eða fjölskylduaðstæðna, dæmi:
kaupsýslumenn,
opinberir starfsmenn sem eru að staðaldri í opinberum tengslum við aðildarríki og stofnanir Evrópusambandsins,
fulltrúar borgaralegra samfélagsstofnana, sem ferðast í því skyni að afla sér menntunar og taka þátt í málstofum og ráðstefnum,
aðstandendur íslenskra ríkisborgara eða EES/EFTA borgara,
aðstandendur ríkisborgara þriðju ríkja sem dveljast löglega í aðildarríkjunum,
sjómenn,löglega notkun fyrri vegabréfsáritana
fjárhagsstöðu sína í upprunalandinu
að það sé einlægur ásetningur hans að fara út af Schengen-svæðinu áður en vegabréfsáritunin, sem sótt er um, rennur út.
Þjónustuaðili
Utanríkisráðuneytið