Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Fyrirlögn prófa

    Í þessum hluta er fjallað um mikilvæg atriði sem framkvæma þarf á prófdegi eða allt frá því að kennari skráir nemendur í próf þar til nemendur ljúka prófi.

    Skref 1: [Að loknu nafnakalli] Nú er að hefjast próf í lesskilningi/stærðfræði. Þetta er stöðu- og framvindupróf sem mun gefa ykkur upplýsingar um hvernig þið standið í lesskilningi/stærðfræði og eins hvernig þið standið miðað við jafnaldra.

    • Hver nemandi er með sína eigin klukku sem birtist efst á skjánum í prófakerfinu. Klukkan í prófinu byrjar að telja þegar þið eruð búin að skrá ykkur inn og þá hefst prófið. Klukkan er stillt á 80 mínútur.

    • Flestir ættu að ná að klára prófið á 40 – 60 mínútum þannig að þið hafið nægan tíma. Mikilvægt er að nýta tímann vel en ekki flýta sér of mikið.

    • Sumar spurningar á prófinu eru léttar en aðrar erfiðar. Ef þið eruð ekki viss um rétt svar skulið þið velja það sem ykkur finnst líklegast til að vera rétt.

    Skref 2: Nú megið þið opna prófaforritið og skrá ykkur inn (sjá skref 2 í Leiðbeiningum til nemenda – próftakan í skrefum).

    • Sláið inn notandanafnið ykkar og lykilorð sem er á borðinu ykkar. Smellið á „Byrja“ [undir stærðfræðipróf eða lesskilningspróf].

    Skref 3: Nú sjáið þið leiðbeiningar sem þið skuluð lesa vel.

    • Smellið á bláu örina neðst í hægra horninu til að fletta áfram.

    • Réttið upp hönd ef þið þurfið aðstoð. Ég má aðstoða ykkur við að halda áfram en ég má ekki hjálpa ykkur að leysa verkefnin. Þið þurfið að leysa þau upp á eigin spýtur svo prófið gefi réttar niðurstöður.

    • Munið að fara vel yfir í lokin hvort þið séuð búin að svara öllum spurningum í prófinu.

    • Verið viss um að þið hafið þau gögn sem þið þurfið til að hefja prófið.

    • Gangi ykkur vel!