Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Leiðbeiningar fyrir tæknitengiliði skóla vegna stöðu- og framvinduprófa Matsferils

    Prófdagurinn: Innskráning í próf og prófi lokað

    Opnunartími prófa: Opið er fyrir innskráningu í próf milli kl. 08:00 og 14:30. Eftir kl. 14:30 er lokað fyrir nýjar innskráningar. Nemendur sem hefja próftöku fyrir þann tíma geta haldið áfram úrlausn prófs þar til kerfið lokar sjálfkrafa kl. 16:00.

    Innskráning

    Aðferðin við innskráningu er ólík eftir því hvort próf er tekið á Chromebook eða tæki með Safe Exam Browser (PC/iPad).

    Hér skiptir öllu máli að nemandi skrái sig EKKI inn með Google aðgangi.

    1. Ekki skrá inn: Gætið þess að tölvan sé á upphafsskjánum („Sign-in screen“). Nemandi á ekki að slá inn netfang eða lykilorð.

    2. Apps valmynd: Neðst til vinstri á skjánum (nálægt „Shut down)“ á að vera hnappur sem heitir „Apps“ (eða „Forrit).

    3. Velja próf: Smellið á „Apps“ og veljið „TAO Portal“ (eða það heiti sem þið völduð í uppsetningu).

    4. Prófið opnast: Tölvan læsist og innskráningarsíða prófsins birtist.

    Sést „Apps“ hnappurinn ekki?

    • Endurræsið tölvuna.

    • Ef hann sést enn ekki er tölvan líklega ekki í réttu „Organizational Unit“ (OU) eða Kiosk stillingar hafa ekki náð að uppfærast. Tækið er ónothæft í prófið ef þessi hnappur finnst ekki.