Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Leiðbeiningar fyrir tæknitengiliði skóla vegna stöðu- og framvinduprófa Matsferils

    Algeng vandamál og lausnir

    Hér eru lausnir á algengustu vandamálum sem gætu komið upp.

    Vandamál

    Líkleg ástæða og lausn

    iPad: Myndavél virkar ekki/svartur skjár við skönnun

    Ástæða:
    Nemandi valdi „Don't allow“/„Nei“ þegar appið bað um leyfi fyrir myndavél.
    Lausn:

    1. Farið í „Settings“ á spjaldtölvunni (gráa tannhjólið).
    2. Skrollið langt niður vinstra megin þar til þið finnið Safe Exam Browser (SEB) og smellið á það.
    3. Finnið „Camera“ í listanum hægra megin og kveikið á takkanum (hann á að vera grænn).

    4. Opnið SEB appið aftur.

    Chromebook: „Apps“ hnappur sést ekki

    Ástæða:
    Tölvan hefur ekki uppfært stefnur (policies) eða er í röngu kerfi.
    Lausn:
    1. Endurræsið tölvuna - ekki bara skella lokinu.
    2. Ef hnappurinn kemur enn ekki er tölvan ekki tilbúin. 

    Ekki reyna viðgerð, skiptið strax um tölvu.

    Nemandi kemst ekki inn

    Lausn:

    1. Athugið hvort CapsLock sé á.

    2. Ef notaður er PC/Mac: Hreinsið vafrakökur (cookies).

    3. Kennari getur endurstillt lykilorð nemanda í Matsferli.

    Tölva frýs/hvítur skjár

    Lausn:

    1. Reynið að endurhlaða síðuna (Refresh/F5) ef hægt er.

    2. Ef tölvan er alveg frosin: Haldið kveikja/slökkva takkanum inni í 10 sekúndur til að slökkva (hard reset), kveikið aftur og skráið nemanda inn. Kerfið vistar jafnóðum svo engin svör ættu að hafa tapast.

    Próf opnast ekki/röng síða

    Ástæða:
    Nemandi er að reyna að opna prófið í venjulegum vafra (Chrome/Edge) eða SEB vantar stillingar.
    Lausn:Tryggið að nemandi noti Apps (Chromebook) eða smelli á sebs:// hlekkinn (PC), ekki bara opna forritið tómt.

    Ekki hægt að skila prófi

    1. Reynið að smella aftur á „Ljúka prófi“.

    2. Ef hnappurinn virkar alls ekki: Takið mynd af skjánum til staðfestingar áður en forritinu er lokað. Sendið staðfestingu og útskýringu á hjalp@midstodmenntunar.is.

    Komast út úr SEB (neyðarútgangur)

    Ef prófi er lokið, tölva biluð eða nemandi hættir: Smellið á kveikja/slökkva hnappinn í horninu (eða „Quit“). Lykilorðið er 1234