Leiðbeiningar fyrir tæknitengiliði skóla vegna stöðu- og framvinduprófa Matsferils
Þjónustuaðili:
Um handbókina
Þessar leiðbeiningar eru ætlaðar tæknitengiliðum skóla til að auka líkur á snurðulausri framkvæmd við fyrirlögn á stafrænum prófum í Matsferli. Hluti leiðbeininganna á erindi við kerfisstjóra sveitarfélaga.
Þar sem tækjabúnaður skóla, og tækniþekking innan þeirra, er mismunandi má vera að þessar leiðbeiningar séu ekki tæmandi. Notendur eru því vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og koma áleiðis ábendingum eða óskum um ítarlegri upplýsingar með því að senda póst á hjalp@midstodmenntunar.is eða hringja í síma 514-7500.