Leiðbeiningar fyrir tæknitengiliði skóla vegna stöðu- og framvinduprófa Matsferils
Þjónustuaðili:
Undirbúningur: prófun á neti
Til að tryggja snurðulausa framkvæmd á prófdegi er nauðsynlegt að staðfesta að netkerfi og tölvubúnaður skólans standist kröfur.
Framkvæmd netprófunar:
Farið á eina tölvu af hverri tegund (Chromebook, PC, iPad) sem verður notuð við fyrirlögn. Opnið vafrann og farið á slóðina:
Box opnast með spurningunni: „Is your school taking the Foreign Language Assessment (FLA)?“ Smellið á >>
NO
<<
Staðfesting: Ef allt er eðlilegt birtist grænn kassi á skjánum.
Ef kerfið stenst ekki kröfur þarf að athuga hvað veldur því.
Ef tæki eru að skila 0 í upload eða 0 í download getur það verið vegna þess að stærð skráa sem tækið býr til er ekki að skrifast á tækið, annaðhvort vegna hamlana í tækinu sjálfu eða vöntun á plássi til að skrifa prufu skrána á tækið.
Prófun á neti er fyrst og fremst ætlað að prófa netsamband, ekki einstaka tæki, og ef eitt tæki nær í gegn er netsamband í lagi á þeim stað.
Einnig er mælt með að nýta aðrar þjónustur til að prófa netsamband, til dæmis https://speedtest.net