Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Leiðbeiningar fyrir tæknitengiliði skóla vegna stöðu- og framvinduprófa Matsferils

    Hlutverk tæknitengiliða

    Tæknitengiliður skóla gegnir lykilhlutverki í undirbúningi og framkvæmd stöðu- og framvinduprófanna. Meginverkefni tæknitengiliða eru eftirfarandi:

    • Yfirsýn yfir tækjabúnað: Að tryggja að skólinn eigi nægjanlegan fjölda tækja sem uppfylla tæknikröfur fyrir prófin.

    • Uppsetning hugbúnaðar: Að sjá til þess að nauðsynlegur hugbúnaður (Safe Exam Browser eða Kiosk stillingar) sé rétt uppsettur á öllum próftökutækjum tímanlega fyrir prófdag.

    • Aðstoð við skipulag: Að vinna með stjórnendum að niðurröðun prófdaga með tilliti til fjölda tækja og netgetu skólans.

    • Aðstoð við innskráningu: Að leiðbeina kennurum hvernig á að aðstoða nemendur við að skrá sig inn í prófið á prófdegi.

    • Viðbragð og stuðningur: Að vera til taks á meðan próf standa yfir (sérstaklega milli 08:00 og 14:30) til að leysa tæknileg vandamál sem upp geta komið.

    • Samskipti við MMS vegna tæknilegra örðugleika sem ekki leysast innan skóla:

    Senda tölvupóst á hjalp@midstodmenntunar.is
    Hringja í síma 514-7500