Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók
Þjónustuaðili:
©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Öll réttindi áskilin
1. útgáfa 2026
Um handbókina
Hér er að finna allar upplýsingar um stöðu- og framvinduprófin, tilgang, undirbúning, framkvæmd og túlkun á niðurstöðum. Stuðningsefnið er í formi handbókar, myndbanda, gátlista og upplýsingabréfs til forsjáraðila og nemenda. Mikilvægur liður í vel heppnaðri fyrirlögn er að notendur prófanna kynni sér efnið vel en það kemur í veg fyrir óvissu þegar kemur að fyrirlögn prófanna.
Mikilvægt er að starfsfólk skóla upplýsi MMS ef upplýsingar skortir vegna framkvæmdar prófanna, fyrirlagnar eða annars sem upp kann að koma. Hægt er að ná í starfsfólk MMS í síma 514-7500 eða senda póst á hjalp@midstodmenntunar.is