Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Leiðbeiningar fyrir tæknitengiliði skóla vegna stöðu- og framvinduprófa Matsferils

    Prófdagurinn: Innskráning í próf og prófi lokað

    Opnunartími prófa: Opið er fyrir innskráningu í próf milli kl. 08:00 og 14:30. Eftir kl. 14:30 er lokað fyrir nýjar innskráningar. Nemendur sem hefja próftöku fyrir þann tíma geta haldið áfram úrlausn prófs þar til kerfið lokar sjálfkrafa kl. 16:00.

    Innskráning

    Aðferðin við innskráningu er ólík eftir því hvort próf er tekið á Chromebook eða tæki með Safe Exam Browser (PC/iPad).

    Hér er gert ráð fyrir að SEB appið hafi verið sett upp á iPad.

    Nemandi getur opnað prófið á tvo vegu:

    • Slá inn slóð: Nemandi fer inn á prof.mms.is og smellir á „Hefja próf“. Þá opnast Safe Exam Browser (SEB) og færir nemanda á rétta síðu til að taka próf.

    • Skanna QR kóða: Nemandi skannar QR kóða sem finna má á prof.mms.is sem opnar SEB.

    • Beiðni frá iPad kemur um að staðfesta læsingu „Confirm App Self-Lock“ og þarf að gera „Yes” þar.

    • Þá færist nemanda á rétta síðu til að skrá sig inn í próf.