Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Leiðbeiningar fyrir tæknitengiliði skóla vegna stöðu- og framvinduprófa Matsferils

    Prófdagurinn: Innskráning í próf og prófi lokað

    Opnunartími prófa: Opið er fyrir innskráningu í próf milli kl. 08:00 og 14:30. Eftir kl. 14:30 er lokað fyrir nýjar innskráningar. Nemendur sem hefja próftöku fyrir þann tíma geta haldið áfram úrlausn prófs þar til kerfið lokar sjálfkrafa kl. 16:00.

    Innskráning

    Aðferðin við innskráningu er ólík eftir því hvort próf er tekið á Chromebook eða tæki með Safe Exam Browser (PC/iPad).

    Nemendur taka prófið í Safe Exam Browser (SEB).

    1. Opna prófið: Nemandi opnar vafrann (æskilegt að nota Chrome/Edge), skrifar inn slóðina prof.mms.is og velur „Hefja próf“. 

    2. Staðfesting: Vafrinn spyr hvort þú viljir opna SEB. Nemandinn velur „Open/Leyfa“.

    3. Læsing: SEB opnast, tölvan læsist og innskráningarsíðan inn í prófið birtist.

    Vandamál? 

    • Ef SEB opnast ekki þarf að tryggja að tölvan sé með rétta SEB uppsetningu. 

    • Ef beðið er um lykilorð til að komast út úr SEB þá er það 1234.