Fara beint í efnið

Leiðbeiningar um virðisaukaskatt í ferðaþjónustu

Þjónustuaðili:

Í leiðbeiningum þessum er leitast við að skýra þær reglur sem gilda um virðisaukaskatt af ferðaþjónustu og annarri ferðatengdri þjónustu. Til þjónustu af þessum toga má nefna gistiþjónustu, sölu á veitingum og fólksflutninga.

Útgáfa: 25.1.2025

    Um handbókina

    Samkvæmt 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, nær skattskyldan til allra vara og verðmæta, nýrra og notaðra og til allrar vinnu og þjónustu sem ekki er sérstaklega undan þegin skv. 3. mgr. sömu greinar. Ferðaþjónusta og önnur ferðatengd þjónusta er almennt virðisaukaskattsskyld en meðal undanþága á þessu sviði má nefna almenningssamgöngur og ferðatengda þjónustu eins og sölu á veiðileyfum í ár og vötn.

    Almennt telst ferðaþjónusta og önnur ferðatengd þjónusta til skattskyldrar veltu skv. 11. gr. laga nr. 50/1988 en í einstaka tilvikum telst hún til undanþeginnar veltu skv. 12. gr. laganna, svo sem þegar um fólksflutninga milli landa er að ræða.

    Sala á ferðaþjónustu og annarri ferðatengdri þjónustu fellur ýmist undir hið almenna skatthlutfall virðisaukaskatts, 24%, eða það lægra, 11%.

    Hér á eftir verður gerð nánari grein fyrir virðisaukaskatti af starfsemi sem tengist ferðaþjónustu, en tekið skal fram að umfjöllunin er ekki tæmandi.