Leiðbeiningar um virðisaukaskatt í ferðaþjónustu
Þjónustuaðili:
Í leiðbeiningum þessum er leitast við að skýra þær reglur sem gilda um virðisaukaskatt af ferðaþjónustu og annarri ferðatengdri þjónustu. Til þjónustu af þessum toga má nefna gistiþjónustu, sölu á veitingum og fólksflutninga.
Útgáfa: 25.1.2025
3 Veitingaþjónusta - sala á matvörum
Sala á matvörum og öðrum vörum til manneldis, eins og skilgreint er í viðauka við lög um virðisaukaskatt, sjá viðauka A, ber virðisaukaskatt í 11% skatthlutfalli. Sala veitingahúsa á tilreiddum mat og veisluþjónusta er skattskyld í sama skatthlutfalli, þar með talin sala áfengis og áfengra drykkja.
Aðstöðuleiga, t.d. fyrir veitingar og samkomur, er aftur á móti skattskyld í 24% skatthlutfallinu. Sama gildir um þjónustu við framreiðslu veitinga sem seld er sérstaklega.