Virðisaukaskattsskyld þjónusta bifreiðastjóra sem selur akstursþjónustu getur ýmist fallið undir 11% eða 24% skatthlutfallið eins og nánar verður fjallað um hér á eftir.
2.4.1 Bifreiðastjóri á eigin bifreið
Selji bifreiðastjóri fólksflutninga á eigin bifreið til ferðaþjónustufyrirtækis í virðisaukaskattsskyldum fólksflutningum ber þjónusta hans virðisaukaskatt í 11% skatthlutfallinu. Selji bifreiðastjóri fólksflutninga á eigin bifreið til aðila í undanþegnum almenningssamgöngum ber þjónusta hans ekki virðisaukaskatt. Í þeim tilfellum sem aðili selur fólksflutninga sem teljast hvoru tveggja skattskyldir og undanþegnir telst hann vera í blandaðri starfsemi. Sjá hér nánari upplýsingar í kafla 8.1 um blandaða sölu.
2.4.2 Bifreiðastjóri án eigin bifreiðar
Þjónusta bifreiðastjóra án eigin bifreiðar telst til akstursþjónustu sem ber ávallt virðisaukaskatt í 24% skatthlutfallinu. Ekki skiptir í því tilfelli máli hvort um sé að ræða sölu akstursþjónustu í þágu virðisaukaskattsskyldra fólksflutninga eða fólksflutninga sem undanþegnir eru virðisaukaskatti, t.d. almenningssamgöngur
2.4.3 Þjónusta leiðsögumanns og bifreiðastjóra sama aðila
Selji aðili samtímis akstursþjónustu án eigin bifreiðar í 24% skatthlutfallinu og leiðsöguþjónustu sem fellur í 11% skatthlutfallið ber að sundurliða hvora þjónustuna fyrir sig á reikningi. Komi engin sundurliðun fram á reikningnum ber að leggja virðisaukaskatt á alla þjónustuna í 24% skatthlutfallinu. Selji aðili fólksflutninga á eigin bifreið og þjónustu leiðsögumanns á sama tíma fellur hvor þjónustan fyrir sig í 11% skatthlutfallið og þarf því ekki sundurliðun á reikningi. Nánari upplýsingar um blandaða sölu er að finna í kafla 8.1