Leiðbeiningar um virðisaukaskatt í ferðaþjónustu
Þjónustuaðili:
Í leiðbeiningum þessum er leitast við að skýra þær reglur sem gilda um virðisaukaskatt af ferðaþjónustu og annarri ferðatengdri þjónustu. Til þjónustu af þessum toga má nefna gistiþjónustu, sölu á veitingum og fólksflutninga.
Útgáfa: 25.1.2025
1 Sala á gistiþjónustu
Útleiga hótel- og gistiherbergja er ávallt skattskyld í 11% skatthlutfallinu, óháð leigutíma.
1.1.1 Gisting afbókuð eða viðskiptavinur mætir ekki
Komi til þess að viðskiptavinur afbóki gistingu með takmörkuðum endurgreiðslumöguleikum, þannig að rekstraraðili haldi eftir hluta eða allri greiðslunni fyrir gistinguna, ber engu að síður að innheimta virðisaukaskatt af greiðslunni í lægra skatthlutfallinu. Litið er svo á að greiðslan standi í það nánum tengslum við sölu gistingar að virðisaukaskattur leggst á greiðsluna líkt og um sölu á gistingu væri að ræða. Þegar viðskiptavinur mætir ekki án þess þó að hafa afbókað gistiþjónustu (e. „no-show“) gilda sömu sjónarmið og hér að framan.
Útleiga tjaldstæða er einnig skattskyld í 11% skatthlutfallinu óháð leigutíma. Aðgangur að rafmagni, salernisaðstöðu og sturtum á tjaldstæði telst hluti af gistiþjónustunni og því skattskyldur í sama skatthlutfalli, óháð því hvort sú þjónusta er innifalin í aðgangseyri að tjaldsvæði. Ef aðgangur að rafmagni, salernisaðstöðu og sturtu er ekki í neinum tengslum við sölu á gistingu þá ber sú þjónusta virðisaukaskatt í hærra skatthlutfallinu.
1.2.1 Gisting afbókuð eða viðskiptavinur mætir ekki
Sömu sjónarmið eiga við hér og í kafla 1.1.1.
Önnur gistiþjónusta en útleiga hótel- og gistiherbergja og tjaldstæða er skattskyld í 11% skatthlutfallinu eingöngu þegar leigt er til skemmri tíma en eins mánaðar. Hér má nefna gistingu á einkaheimilum (heimagistingu), sveitabæjum, í veiðihúsum, sumarbústöðum, og gistiskálum hvers konar.
Hafi aðili hins vegar eingöngu með höndum útleigu á húsnæði, sem ekki telst vera hótel- eða gistiherbergi, eða tjaldstæði, til lengri tíma en eins mánaðar, telst starfsemi hans til fasteignaleigu sem er undanþegin virðisaukaskatti, enda séu almenn skilyrði fasteignaleigu uppfyllt. Í þessu sambandi ber að nefna að aðstöðuleiga er virðisaukaskattsskyld þjónusta í 24% skatthlutfallinu.
1.4.1 Gististaðir, tjaldstæði o.fl.
Þeir sem hafa með höndum rekstur gististaðar sem hefur rekstrarleyfi í flokki II-IV, sbr. 3. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007, og rekstur tjaldstæða og stæða fyrir húsbíla, tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi, skulu greiða gistináttaskatt af hverri seldri gistináttaeiningu. Með henni er átt við leigu á gistiaðstöðu í allt að einn sólarhring, þ.m.t. yfir nótt. Með gistiaðstöðu er átt við húsnæði eða svæði, þar á meðal um borð í skemmtiferðaskipi, sem leigt er út í þeim tilgangi að þar sé dvalið yfir nótt, svefnaðstaða sé fyrir hendi eða hægt sé að koma henni fyrir og leigan sé almennt til skemmri tíma en eins mánaðar.
Gistináttaskattur af hverri seldri gistináttaeiningu á gististað sem hefur rekstrarleyfi í flokki II-IV, sbr. 3. gr. laga nr. 85/2007 skal vera 800 kr.
Gistináttaskattur af hverri seldri gistináttaeiningu á tjaldstæði og stæðum fyrir húsbíla, tjaldvagna, fellihúsi og hjólhýsi skal vera 400 kr.
1.4.2 Skemmtiferðaskip í innanlandssiglingum
Þeir sem hafa með höndum innanlandssiglingar skemmtiferðaskipa við Ísland skulu greiða gistináttaskatt fyrir hvern dvalargest fyrir hvern byrjaðan sólarhring sem farþegi dvelur í skipinu.
Gistináttaskattur fyrir hvern farþega á hvern byrjaðan sólarhring skal vera 400 kr.
1.4.3 Undanþágur frá greiðslu gistináttaskatts
Þeim sem hafa með höndum sölu á gistingu skv. kafla 1.4.1, en eru ekki skráðir á virðisaukaskattsskrá vegna undanþágu frá skráningarskyldu, ber ekki að greiða gistináttaskatt.
Enn fremur ber ekki að greiða gistináttaskatt fyrir gistiaðstöðu sem áhöfn og annað starfsfólk í skemmti ferðaskipi í innanlandssiglingum við Ísland hafa til umráða um borð í skipinu.
1.4.4 Virðisaukaskattur og tímamark tekjuskráningar
Gistináttaskattur telst ekki til skattverðs í virðisaukaskatti og leggst því ekki virðisaukaskattur á gistináttaskatt við sölu á gistináttaeiningu.
Þar sem gistináttaskatturinn telst ekki til skattverðs gerir það rekstraraðilum kleift að innheimta skattinn á öðru tímamarki en þegar reikningur fyrir gistingunni er gefinn út. Af því leiðir að heimilt er að innheimta skattinn við komu viðskiptavina eða við útgáfu reiknings.
1.4.4.1 Gisting afbókuð eða viðskiptavinur mætir ekki
Hafi rekstraraðili innheimt gistináttaskatt við sölu gistingar í stað þess að innheimta hann við komu viðskiptavinar og hann annað hvort afbókar gistinguna með takmörkuðum endurgreiðslumöguleikum eða hann mætir ekki (e. ,,no show“), ber að endurgreiða viðskiptavininum þegar innheimtan gistináttaskatt. Geti rekstraraðili ekki komið við endurgreiðslu til viðskiptavinar ber honum að skila gistináttaskattinum í ríkissjóð með uppgjöri þess tímabils sem upphaflega bókunin tók til eða þegar afbókun átti sér stað, á því tímamarki sem á undan kemur.
1.4.5 Uppgjör gistináttaskatts
Uppgjörstímabil gistináttaskatts eru tveir mánuðir í senn, þ.e. janúar-febrúar, mars-apríl o.s.frv. Gjalddagi er fimmti dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.
Ríkisskattstjóri ákveður form skýrsluskila og skulu skattskyldir aðilar ótilkvaddir skila Skattinum skýrslu um fjölda seldra gistinátta eða fjölda farþega skemmtiferðaskips á uppgjörstímabilinu og standa skil á greiðslu skattsins til inn heimtumanns ríkissjóðs eigi síðar en á gjalddaga.
Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir.
Þeim sem hafa með höndum rekstur skemmtiferðaskipa í millilandasiglingum ber að greiða innviðagjald fyrir hvern farþega um borð í skipinu fyrir hvern byrjaðan sólarhring sem skipið dvelur í höfn hér á landi eða annarsstaðar á tollsvæði ríkisins.
Innviðagjaldið fyrir hvern farþega á hvern byrjaðan sólarhring skal vera 1.600 kr.
1.5.1 Undanþágur frá greiðslu innviðagjalds
Ef skemmtiferðaskip í millilandasiglingu leggst að höfn hér á landi og fyrir liggur með sannanlegum hætti að skipið hafi verið í nauðum statt vegna áreksturs, sjóskemmda, veikinda eða ófriðar ber ekki að greiða innviðagjald sbr. kafla 1.5. Ennfremur ber ekki að greiða innviðagjald fyrir áhöfn og annað starfsfólk um borð.
1.5.2 Uppgjör innviðagjalds
Uppgjörstímabil innviðagjalds telst vera sá tími sem skipið er innan tollsvæðis ríkisins hverju sinni. Gjalddagi er fimmtán dögum eftir að skip yfirgefur tollsvæðið.
Ríkisskattstjóri ákveður form skýrsluskila og skulu skattskyldir aðilar ótilkvaddir skila Skattinum skýrslu um fjölda farþega á uppgjörstímabilinu og standa skil á greiðslu skattsins til innheimtumanns ríkissjóðs eigi síðar en á gjalddaga.
Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir.
Almenna reglan er sú að hafi aðili að einhverju leyti með höndum sölu á annarri gistingu en hótel- og gistiherbergi eða tjaldstæði, til skemmri tíma en eins mánaðar, ber honum að innheimta virðisaukaskatt í 11% skatthlutfallinu af starfsemi sinni. Aðili sem rekur skattskylda gistiþjónustu hluta úr ári og fasteignaleigu hluta úr ári telst vera með blandaða starfsemi enda hafi hann með höndum sölu á skattskyldri gistiþjónustu í fimm mánuði á ári eða skemur.