Leiðbeiningar um virðisaukaskatt í ferðaþjónustu
Þjónustuaðili:
Í leiðbeiningum þessum er leitast við að skýra þær reglur sem gilda um virðisaukaskatt af ferðaþjónustu og annarri ferðatengdri þjónustu. Til þjónustu af þessum toga má nefna gistiþjónustu, sölu á veitingum og fólksflutninga.
Útgáfa: 25.1.2025
6 Baðhús, baðstaðir og gufuböð
Aðgangur að baðstöðum, baðhúsum, gufubaðstofum og heilsulindum, annars staðar en í hefðbundnum íþróttamannvirkjum, er virðisaukaskattsskyldur í 11% skatthlutfallinu. Eingöngu aðgangseyrir að slíkum stöðum fellur undir 11% skatthlutfallið. Önnur virðisaukaskattsskyld starfsemi sem fram fer samhliða aðgangi að baðstað, svo sem hvers kyns snyrtiþjónusta, fellur undir 24% skatthlutfallið. Aðgangur að baðaðstöðu í hefðbundnum íþróttamannvirkjum, svo sem sundlaugum og líkamsræktarstöðvum, er aftur á móti undanþeginn virðisaukaskatti