Fara beint í efnið

Leiðbeiningar um virðisaukaskatt í ferðaþjónustu

Þjónustuaðili:

Í leiðbeiningum þessum er leitast við að skýra þær reglur sem gilda um virðisaukaskatt af ferðaþjónustu og annarri ferðatengdri þjónustu. Til þjónustu af þessum toga má nefna gistiþjónustu, sölu á veitingum og fólksflutninga.

Útgáfa: 25.1.2025

    7 Skráning á virðisaukaskattskrá

    Sérhver skattskyldur aðili skal tilkynna Skattinum um starfsemi sína eða atvinnurekstur til skráningar á virðisaukaskattsskrá eigi síðar en átta dögum áður en starfsemi hefst.

    Hafi erlent fyrirtæki, t.d. ferðaskrifstofa eða fólksflutningafyrirtæki, sem rekur hér skattskylda starfsemi ekki fasta starfsstöð hérlendis ber því að fela umboðsmanni með heimilisfesti hér á landi að vera í fyrirsvari fyrir sig, þar með talið að tilkynna um starfsemina til Skattsins, innheimta virðisaukaskatt af starfseminni og skila honum í ríkissjóð.

    Ríkisskattstjóri færir aðila á virðisaukaskattsskrá, úthlutar skráningarnúmeri (VSK-númeri) og gefur út staðfestingu á að skráning hafi átt sér stað. Breytingar sem verða á starfsemi fyrirtækis eftir skráningu skal tilkynna eigi síðar en átta dögum eftir breytinguna.

    Nánari upplýsingar um skráningu á virðisaukaskattsskrá.