Leiðbeiningar um virðisaukaskatt í ferðaþjónustu
Þjónustuaðili:
Í leiðbeiningum þessum er leitast við að skýra þær reglur sem gilda um virðisaukaskatt af ferðaþjónustu og annarri ferðatengdri þjónustu. Til þjónustu af þessum toga má nefna gistiþjónustu, sölu á veitingum og fólksflutninga.
Útgáfa: 25.1.2025
8 Tekjuskráning og bókhald
Tekjuskráning bókhaldsskyldra aðila skal byggjast á skýru og öruggu kerfi sem tryggir að unnt sé að sannreyna að allar tekjur komi fram. Öllum bókhaldsskyldum aðilum ber að færa bókhald og haga færslum, bókhaldsbókum og reikningaskipan í samræmi við bókhaldslög.