Mikil ásókn hefur verið í að sækja Ferðagjöfina en nú fyrstu vikuna hafa þegar um 35 þúsund manns sótt sína Ferðagjöf á Ísland.is.
Enn eru ferðaþjónustufyrirtæki að bætast við en þegar eru 628 fyrirtæki skráð til leiks og þau er að finna um land allt.
Markmiðið er að styðja við íslenska ferðaþjónustu og hvetja Íslendinga til að ferðast um innanlands og njóta þess sem landið hefur uppá að bjóða. Þegar hafa 2940 nýtt sér sína Ferðagjöf.