Fara beint í efnið

24. ágúst 2022

Umsókn um styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Ferðamálastofa hefur opnað nýja rafræna umsókn á Ísland.is. Nú geta ferðamannastaðir og ferðamannaleiðir í eigu og umsjón sveitafélaga og einkaaðila sótt um rafrænt á Ísland.is. Opið er fyrir umsóknir til kl. 13.00 þann 5. október 2022.

landslag

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2022. Umsóknarfrestur er frá 24. ágúst 2022 til kl. 13:00 miðvikudaginn 5. október 2022.


Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:

  • Öryggi ferðamanna.

  • Náttúruvernd og uppbyggingu.

  • Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.

  • Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.

Sjóðnum er ekki heimilt:

  • Að bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.

  • Að fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.

Gæði umsókna

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins ásamt frekari upplýsingum um skilyrði lánveitinga og umsóknarferlið sem finna má á upplýsingasíðu um umsóknir hjá Ferðamálastofu.

Umsóknum er skilað rafrænt á Ísland.is.

Umsóknarfrestur er frá 24. ágúst 2022 til kl. 13:00 miðvikudaginn 5. október 2022.
 Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita.


Mynd frá Íslandsstofu.

Lesa frétt um umsókn á vef Ferðamálastofu.