Fara beint í efnið

29. ágúst 2022

Sjúkratryggingar hafa flutt vefsíðu sína yfir á Ísland.is

Sjúkratryggingar hafa flutt vefsíðu sína inn á Ísland.is. Stofnunin telur að með þessu batni þjónusta við almenning til muna en á nýja vefnum á Ísland.is geta notendur nálgast allar upplýsingar um réttindi, endurgreiðslur og fleira.

Stafræn þjónusta

Sjúkratryggingar hafa unnið markvisst að því að bæta þjónustu við viðskiptavini síðustu misseri en færsla vefsins yfir á Ísland.is var unnin í samstarfi við Stafrænt Ísland sem hefur það hlutverk að styðja við stofnanir ríkisins á stafrænni vegferð þeirra. Til að tryggja bætta þjónustu hefur allt efni á vefnum verið endurskoðað og uppfært með aðgengismál að leiðarljósi.

María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga:

Sjúkratryggingar hófu þessa vinnu fyrir aðeins rúmu ári síðan, í samstarfi við Stafrænt Ísland. Megináherslan var á bætta þjónustu og aðgengilegt efni um þá málaflokka sem Sjúkratryggingar sinna. Þeir sem fara inn á Ísland.is sjá að notendaviðmótið hefur verið stórbætt og framsetning einfölduð. Viðtökurnar hafa verið góðar og mér skilst að vefsvæði Sjúkratrygginga sé með flestar heimsóknir af öllum síðum á Ísland.is frá því vefurinn fór í loftið 1. júlí síðastliðinn. Samstarfið við Stafrænt Ísland hefur verið mjög gott og við erum spennt fyrir næstu skrefum í því.

Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands:

Við bjóðum Sjúkratryggingar hjartanlega velkomnar. Samstarfið hefur gengið vel og aðdáunarvert að sjá þann metnað sem starfsfólk Sjúkratrygginga hefur sýnt í að bæta þjónustu við viðskiptavini sína. Vinna þeirra eflir þann þekkingarbrunn sem er í uppbyggingu á Ísland.is og flutningur vefs þeirra tryggir að nýjustu og réttustu upplýsingar séu aðgengilegar hverju sinni.

Meðal annarra stofnana sem undirbúa nú að færa vefi sína yfir á Ísland.is eru Útlendingastofnun, Fiskistofa, Embætti landlæknis og Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Sýslumannsembættin eru einnig komin á Ísland.is.

Skoða nýjan vef Sjúkratrygginga á Ísland.is