6. október 2022
6. október 2022
Mannauðstorg ríkisins á Ísland.is
Mannauðstorg ríkisins, er ný upplýsingasíða um alla þætti mannauðsmála hjá ríkinu en síðan er hluti af Ísland.is.
Mannauðstorginu er ætlað að bæta þjónustu við notendur mannauðs- og launaupplýsinga hjá ríkinu en einnig að veita greinargóðar almennar upplýsingar. Fjallað er um alla þætti mannauðsmála, svo sem ráðningar, starfsþróun, heilsu, öryggi, vinnuumhverfi, samskipti, endurgjöf, starfsþróun og starfslok.
Enn fremur er á síðunni að finna upplýsingar um túlkun fjármála- og efnahagsráðuneytisins á ákvæðum kjarasamninga, leiðbeiningar og sniðmát.
Mannauðstorginu er ætlað að styðja betur við mannauð ríkisins en hjá ríkinu starfa um 22 þúsund manns í um 18 þúsund stöðugildinu, í 12 ráðuneytum og 162 stofnunum.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Fjársýsla ríkisins unnu að síðunni, en samhliða útgáfu Mannauðstorgsins flyst ráðgjöf vegna mannauðsmála sem áður var á hendi kjara- og mannauðssýslu ríkisins til mannauðs- og launasviðs Fjársýslu ríkisins. Með bættu aðgengi að upplýsingum á mannauðstorgi og aukinni áherslu á stafrænar lausnir er gert ráð fyrir að mörg erindi verði hægt að leysa í formi sjálfsafgreiðslu.
Mun kjara- og mannauðssýslan sinna stefnumarkandi hlutverki í mannauðsmálum, bera ábyrgð á samningamálum og túlkunum og útfærslum kjarasamninga ásamt því að setja og innleiða stjórnendastefnu ríkisins
Mannauðs og launasvið Fjársýslu ríkisins mun sinna þjónustu og ráðgjöf við ríkisaðila á sviði mannauðs- og launamála ásamt launaafgreiðslu, launakeyrslum, launaþjónustu og þróun mannauðs- og launakerfa ríkisins.
Verkefnið er í takt við stefnu stjórnvalda um aukna stafræna þjónustu og nýsköpun í ríkisrekstri og var unnið í nánu samstarfi fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Fjársýslu ríkisins og Stafræns Íslands.