19. janúar 2024
19. janúar 2024
Stafræn málsmeðferð í dánarbúsmálum
Sýslumenn hafa frá árinu 2021 unnið að því að koma málsmeðferð í dánarbúsmálum á stafrænt form. Góður árangur hefur náðst í þeirri vegferð. Áfram geta erfingjar þó mætt á starfsstöðvar sýslumanna með útfyllt eyðublöð.
Dánarvottorð eru rafræn í um 90% tilfella og berast beint inn í Sýsluna, málakerfi sýslumanna. Í ársbyrjun 2023 var hlutfallið 21%. Góð samvinna opinberra stofnanna hefur skilað góðum árangri í innleiðingu rafrænna dánarvottorða.
Í desember síðast liðinn voru 55% andlátstilkynninga til sýslumanna stafrænar. Aðstandendur þurftu í þeim tilfellum ekki að leggja leið sína á starfsstöðvar sýslumanna til þess að tilkynna andlátið.
Eftirfarandi ferli eru nú aðgengileg erfingjum á stafrænu formi.
Erfingjar þurfa að vera með rafræn skilríki til þess að geta nýtt sér ferlin. Ef erfingjar velja að fylla út stafrænt form þurfa þeir ekki að mæta á starfsstöðvar sýslumanna eða senda í bréfpósti frumrit af eyðublöðum.
Jafnframt má nefna eftirfarandi:
Skattframtöl sendast sjálfkrafa til sýslumanna.
Upplýsingar um ökutæki látna sendast sjálfkrafa til sýslumanna.
Upplýsingar um skotvopn látna sendast sjálfkrafa til sýslumanna.
Sýslumenn senda áritaðar erfðafjárskýrslur beint úr Sýslunni til Skattsins.
Bálstofan sendir allar beiðnir um líkbrennslu á stafrænu formi til sýslumanna.
Hvað er framundan?
Stafræn erfðafjárskýrsla.
Upplýsingar um fasteignir látna sendist sjálfkrafa til sýslumanna.
Upplýsingar frá bönkum um stöðu eigna og skulda hins látna sendist sjálfkrafa til sýslumanna.
Upplýsingar frá Tryggingastofnun ríkisins sendist sjálfkrafa til sýslumanna.
Samstarfsaðilar geti sjálfkrafa fengið yfirlit um framvindu skipta.
Unnið að tengingum við aðra samstarfsaðila.