Fara beint í efnið

Hvernig sæki ég um ríkisborgararétt til Alþingis?

Sérstakt umsóknareyðublað er notað fyrir beiðni um þingmeðferð umsókna um ríkisborgararétt til Alþingis.

Á umsóknareyðublaðinu þarf umsækjandi að gefa almennar upplýsingar um sig og fjölskylduhagi sína og veita hnitmiðaðan rökstuðning fyrir beiðni til Alþingis um undanþágu frá ríkisborgaralögum. Auk rökstuðningsins er umsækjanda frjálst að leggja fram ítarlegri greinargerð um ástæður undanþágubeiðninnar.

Umsóknina er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi og má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi eða með því að senda umsókn í bréfpósti á sama heimilisfang.

Afgreiðslugjald fyrir umsókn um ríkisborgararétt er 27.000 krónur. Umsókn er ekki tekin til vinnslu fyrr en greiðsla hefur borist.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

Útlendingastofnun

Þjónustuver

Afgreiðslan er opin 9 - 14 alla virka daga Þjónustuverið er opið mán - fim: 9 - 14 & fös 9 - 12

Dalvegur 18, 201 Kópavogi (sjá kort)

Netspjall

Sendu okkur línu

Sími +354 444 0900