Fara beint í efnið

Ég bý ekki á Íslandi. Get ég sótt um ríkisborgararétt?

Samkvæmt lögum um íslenskan ríkisborgararétt þarftu að hafa fasta búsetu á Íslandi þegar umsókn um ríkisborgararétt er lögð fram og þegar ákvörðun er tekin. Með fastri búsetu er átt við þann stað þar sem einstaklingur hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og er svefnstaður hans þegar hann er ekki fjarverandi um stundarsakir. Lögheimili þitt á Íslandi þarf að vera skráð hjá Þjóðskrá Íslands.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

Útlendingastofnun

Þjónustuver

Afgreiðslan er opin 9 - 14 alla virka daga Þjónustuverið er opið mán - fim: 9 - 14 & fös 9 - 12

Dalvegur 18, 201 Kópavogi (sjá kort)

Netspjall

Sendu okkur línu

Sími +354 444 0900