Leyfi fyrir starfsemi á friðlýstum svæðum öðrum en Vatnajökulsþjóðgarði
Fyrir hverja er umsóknin?
Þú þarft að sækja um leyfi ef þú hyggst stunda atvinnustarfsemi á friðlýstu svæði.
Skilyrði og afgreiðsla
Óheimilt er að hefja starfsemi eða undirbúning á svæðinu áður en leyfi hefur verið veitt.
Umsókn er eingöngu send inn með eigin innskráningu (ekki í umboði).
Ef sótt er um leyfi fyrir mörg svæði, skal skila inn einni sameiginlegri umsókn og tilgreina öll svæðin og nákvæma staðsetningu innan þeirra.
Afgreiðslutími
Afgreiðslutími er allt að 15 virkir dagar frá því öll gögn liggja fyrir.
Ef starfsemi fer fram innan verndarsvæðis Mývatns og Laxár getur afgreiðslutími verið allt að 30 dagar.
Gjaldtaka
Greitt er samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Ef vinnsla fer yfir grunngjald er innheimt tímagjald fyrir umframvinnu sérfræðings.
Ef umsókn berst innan 5 virkra daga fyrir verkefni getur bæst við gjald sem nemur 2 klst. vinnu sérfræðings.
Þetta þarftu að hafa tilbúið
Kennitölu rekstraraðila.
Upplýsingar um tengilið (kennitala, netfang, sími).
Kennitölu greiðanda gjalds.
Lýsingu á starfsemi og staðsetningu.
Kort og myndir með merktum athafnasvæðum.
Tímasetningar og fjölda starfsmanna/gesta.
Upplýsingar um tæki, mannvirki og mögulegt rask.
Leyfi frá sveitarfélagi, landeiganda og heilbrigðiseftirliti (ef við á).
Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun