Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Umsókn um leyfi til viðburðahalds

Fyrir hverja er umsóknin?

Þú þarft að sækja um leyfi ef þú hyggst halda viðburð á friðlýstu svæði (íþrótta-, menningar- eða einkaviðburður).

Skilyrði og afgreiðsla

  • Óheimilt er að hefja viðburð eða undirbúning hans áður en leyfi hefur verið veitt.

  • Umsókn er eingöngu send inn með eigin innskráningu (ekki í umboði).

  • Afgreiðslutími er allt að 15 virkir dagar frá því öll gögn liggja fyrir.

  • Innan verndarsvæðis Mývatns og Laxár getur afgreiðslutími verið allt að 30 dagar.

  • Ef sótt er um leyfi fyrir mörg svæði skal skila einni sameiginlegri umsókn.

Gjaldtaka

  • Greitt er samkvæmt gildandi gjaldskrá.

  • Ef vinnsla fer yfir grunngjald er innheimt tímagjald fyrir umframvinnu.

  • Ef umsókn berst innan 5 virkra daga fyrir viðburð getur bæst við gjald sem nemur 2 klst. vinnu sérfræðings.

Þetta þarftu að hafa tilbúið:

  • Kennitala rekstraraðila (fyrirtækis).

  • Upplýsingar um tengilið og greiðanda gjalds.

  • Lýsingu á viðburði og staðsetningu.

  • Kort og myndir með merktum athafnasvæðum.

  • Tímasetningar og fjölda þátttakenda.

  • Upplýsingar um tæki, aðstöðu og takmarkanir.

  • Notkun dróna eða kvikmyndatöku ef við á.

Athugið

  • Leyfi frá sveitarfélagi og/eða landeiganda gæti þurft – fer eftir staðsetningu.

  • Ekki er heimilt að hefja viðburð nema leyfi liggi fyrir.

Umsókn um leyfi til viðburðahalds