Umsókn um rekstur starfsemi Vatnshellis í Snæfellsjökulsþjóðgarði
Hér getur þú sótt um leyfi til að reka þjónustu gegn greiðslu á friðlýstu svæði á landi í eigu ríkisins. Umsóknin fellur undir lög nr. 100/2021 um nýtingu lands í eigu ríkisins í atvinnuskyni.
Athugaðu að umsókn þarf að vera ítarleg og fylgigögn að uppfylla öll skilyrði.
Hvað þarf að fylgja umsókn?
Til að umsókn verði tekin til greina þarftu að skila eftirfarandi:
Upplýsingar um starfsemi
Ítarleg lýsing á fyrirhugaðri starfsemi
Lýsing á verkefnum síðustu þriggja ára
Fjárhags- og rekstrargögn
Tilboð rekstraraðila (hlutfall af mánaðarlegri veltu án virðisaukaskatts)
Áritaðir ársreikningar fyrir 2024 og 2025
Verðskrá við upphaf starfsemi
Leyfi og vottorð
Gilt leyfi ferðasala dagsferða frá Ferðamálastofu
Vottorð frá Ríkisskattstjóra (ekki eldra en 3 mánaða)
Vottorð frá lífeyrissjóðum (ekki eldra en 3 mánaða)
Starfsfólk og hæfni
Yfirlit yfir starfsfólk og reynslu þess af leiðsögn í náttúru Íslands
Staðfesting á námskeiði í fyrstu hjálp (Fyrsta hjálp 1 eða sambærilegt)
Afrit af skírteini í landvörslu eða sambærilegu viðurkenndu námi
Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun