25. október 2022
25. október 2022
Fréttabréf október 2022
Fréttabréf Stafræns Íslands október 2022.
Ísland í 5. sæti í úttekt Sameinuðu þjóðanna
Ísland hækkar í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að stafrænni opinberri þjónustu og innviðum. Í nýrri úttekt Sameinuðu þjóðanna sem gerð er annað hvert ár er Ísland nú í 5. sæti af 193 löndum, en var í 12. sæti árið 2020. Af þeim löndum sem eru í tíu efstu sætunum í úttektinni hækkar Ísland mest á milli úttekta.
Þetta stökk upp á við milli úttekta færir Ísland upp fyrir þjóðir eins og Bretland og Eistland. Þjóðir sem hafa verið leiðandi hvað stafræna þjónustu varðar og við Íslendingar höfum horft mikið til.
Stafrænt Ísland á alþjóðlegum ráðstefnum
Stafrænt Ísland var fengið í pallborðsumræður og flutti erindi um árangur Íslands á tveimur alþjóðlegum ráðstefnum stafrænna leiðtoga í Ottowa Kanada.
Skuldleysisvottorð fyrirtækja
Nú geta prófkúruhafar fyrirtækja sótt skuldleysisvottorð fyrir fyrirtækið á Ísland.is. Umsóknin er sú fyrsta sem notar umboðskerfið til að kanna tengsl einstaklinga við fyrirtæki.
Lesa nánar um skuldleysisvottorð
Þrjár stofnanir hlutu viðurkenningu fyrir Stafræn skref
Óskum sýslumönnum, Fjársýslu ríkisins og Ríkislögreglustjóra innilega til hamingju!
Lesa frétt um Stafræn skref
Tengjum ríkið 2022
Mikil þátttaka var á Tengjum ríkið ráðstefnunni í ár en þetta er í þriðja sinn sem ráðstefnan er haldin. Hátt í 400 manns lögðu leið sína í Hörpu og mikill fjöldi fylgdist með í streymi.
Velkomin HSN
Heilbrigðisstofnun Norðurlands flutti vef sinn á Ísland.is í lok september. Það er liðsstyrkur fyrir Ísland.is að fá sérfæringa HSN til samstarfs. Velkomin á Ísland.is!
Mannauðstorg ríkisins á Ísland.is
Mannauðstorg ríkisins, er ný upplýsingasíða um alla þætti mannauðsmála hjá ríkinu en síðan er hluti af Ísland.is.
Velkomin á Ísland.is!
Lesa frétt um Mannauðstorg ríkisins
Meðal verkefna Stafræns Íslands þessa dagana eru:
Vegabréfið þitt - birting upplýsinga á Mínum síðum Ísland.is og í appi Ísland.is
Stafræn umsókn um vegabréf
Rafræn þinglýsing á afsali fasteigna
Rafræn þinglýsing á kaupsamningum fasteigna
Umboðskerfi fyrir stofnanir
Rafræn skil á ársreikningum til Ríksendurskoðunar
Tveggja ára vegvísir stafrænnar þjónustu sveitafélaga á Ísland.is
Fjárhagsaðstoð Sveitafélaga á Ísland.is.
Vefur Fiskistofu á Ísland.is
Vefur Ríkislögmanns á Ísland.is
Vefur Landskjörstjórnar á Ísland.is
Vefur Ríkiskaupa á Ísland.is