Fara beint í efnið
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Tengjum ríkið 2022 - ráðstefna

Tengjum ríkið er ráðstefna um stafræna framtíð hins opinbera og fór fram í í ár í Hörpu þann 22. september sem og í streymi.

Aðalfyrirlesari að þessu sinni var Kevin Cunnington fyrrum forstjóri GDS (Government Digital Services) í Bretlandi en hann er einn þeirra sem hefur leitt stafræna þróun hins opinbera þar í landi. Kevin Cunnington mun leiða okkur í gegnum nýja rannsókn sem fjallar um hvað það er sem stafrænir leiðtogar þurfa til að ná árangri og helstu hindranir stofnana á stafrænni vegferð. Þá fengum við erindi frá Dr. Silvija Seres en hún sérhæfir sig í stafrænni umbreytingu.

Ráðstefnan hófst kl. 12.30 með opnunarerindi frá Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, erindi frá Andra Heiðari Kristinssyni, framkvæmdastjóra Stafræns Íslands, ásamt erindum frá lykilfyrirlesurum dagsins þeim Kevin Cunnington og Silviju Seres. Þau erindi verða flutt í rými Þjónustu.

Eftir hlé skiptist dagskráin í þrjár línur, Þjónustu, Þróun og Tækifæri. Í Þjónustu verður áhersla á stafræna þjónustu stofnana. Í Þróun var aðeins kafað á dýptina og stafrænar lausnir sem í boði eru skoðaðar. Tækifæri voru hugsuð sem brú milli opinberra aðila og einkageirans með sérstakri áherslu á öryggi og nýsköpun.
Öll erindin eru nú aðgengileg hér neðar en nánari lýsingu á hverju þema og ítarlega dagskrá má finna enn neðar.

Tengjum ríkið 2022

Þjónusta

Þróun

Tækifæri

Tengjum ríkið 2022 – dagskrá

Ráðstefnan í ár fer fram í þremur sölum sem og í streymi. Lykiláherslur og ítarlega dagskrá hverrar áherslu er að finna hér neðar. Mikilvægt er að allir skrái sig hér ofar til að tryggja sæti í sal sem og til að tryggja að fá sendan hlekk á streymi.

Þjónusta

Erindi í Þjónustu eru hugsuð fyrir forstöðumenn, stafræna leiðtoga og rekstrarstjóra hjá stofnunum þó allir áhugasamir séu velkomnir. Erindin eru hugsuð til fræðslu og upplýsinga fyrir þau sem leiða stafræna vegferð innan stofnana en eiga sömuleiðis við langt út fyrir stjórnsýslu.

Markmiðið er að veita innblástur og opna á þau tækifæri sem standa stofnunum til boða í stafrænni vegferð.

Fundarstjóri í Þjónustu er Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður.

12.30 Opnunarávarp ráðherra
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra

12.45 Stafræn skref inn í framtíðina
Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands

13.05 The New Normal for Iceland
Silvija Seres, mathematician, board member and investor

13.45 Digital Leaders Study Launch
Kevin Cunnington, Former Digital Envoy for the UK and Director General of the Government Digital Service.

14.30 Kaffihlé

15.00 Landspítalaapp – skjólstæðingurinn í öndvegi
Adeline Tracz, verkefnastjóri nýþróunar hjá Heilbrigðis- og upplýsingatæknideild Landspítala.

15.15 DPS – Hýsing og rekstur – Skýjalausnir
Sigrún Svava Valdimarsdóttir, sérfræðingur – stefnumótandi innkaup hjá Ríkiskaupum

15.30 Hvernig verður stafræn vegferð til? Reynslusaga frá Sjúkratryggingum
Kristján Þorvaldsson, sviðsstjóri upplýsingatæknisviðs Sjúkratrygginga

15.45 Frá faxi til framtíðar
Anna Sigríður Vilhelmsdóttir, verkefnastjóri á upplýsingatæknisviði Fiskistofu

16.00 Fjármögnun umbóta
Guðrún Birna Finnsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu stjórnunar og umbóta í fjármála- og efnahagsráðuneytinu

16.15 Stafræn vegferð Samgöngustofu
Lárus Long, deildarstjóri upplýsingatæknideildar Samgöngustofu

16.30 Stafræn skref stofnana – viðurkenning

16.45 Ráðstefnulok


Þróun

Erindi hér eru hugsuð fyrir tæknistjóra, stafræna leiðtoga, forritara og tæknifólk hjá stofnunum en öll áhugasöm eru velkomin. Erindin fara meira á dýptina og eru tæknilegri en í Þjónustu en jafnframt hugsuð til fræðslu og upplýsinga fyrir þau sem leiða stafræna vegferð innan stofnana. Öllum er velkomið að fylgjast með hér enda erindi sem eiga við langt út fyrir stjórnsýslu og tækniumhverfi.

Markmiðið er að veita innblástur og vekja athygli á þeim þjónustum sem standa stofnunum til boða hjá Stafrænu Íslandi.

Fundarstjóri í Þróun er Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Grid.

12.30 Erindi í sal í Þjónustu

14.30 Kaffihlé

15.00 Innskráning fyrir alla
Gunnar Ingi Reykjalín Sveinsson, vörustjóri hjá Stafrænu Íslandi
Sævar Már Atlason, sérfræðingur hjá Aranja

15.15 Mínar síður – verkefnasaga
Ragnhildur H. Ragnarsdóttir, vörustjóri Stafræns Íslands
Ragnheiður Þorleifsdóttir & Ásdís Erna Guðmundsdóttir, Hugsmiðjan

15.30 Ríkið í vasanum – Ísland.is appið og stafræn skírteini
Sigurbjörn Reginn Óskarsson, vörustjóri hjá Stafrænu Íslandi

15.45 Umsóknarkerfi Ísland.is
Gunnar Ingi Reykjalín Sveinsson, vörustjóri hjá Stafrænu Íslandi

16.00  Stafrænt pósthólf – Lausnin, lögin og leiðin
Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Stafrænu Íslandi

16.15 Vefir stofnana – Öll á sömu síðu
Kolbrún Eir Óskarsdóttir, verkefnastjóri hjá Stafrænu Íslandi
Bergvin Gunnarsson, verkefnastjóri hjá Stefnu

16.30 Stafræn skref stofnana – viðurkenning

16.45 Ráðstefnulok


Tækifæri

Erindi hér eru hugsuð sem brú milli stjórnsýslu og atvinnulífs með áherslu á öryggi , nýsköpun og tækni. Erindin koma úr ólíkum áttum og ætlað að fræða og upplýsa þau sem koma að og hafa áhuga á stafrænni þróun. Öllum er velkomið að fylgjast með því sem fram fer fram í Tækifæri enda erindi sem eiga við allar greinar atvinnulífsins sem og stjórnsýsluna.

Markmiðið er að veita innblástur og vekja athygli á þeim þjónustum sem standa stofnunum til boða hjá Stafrænu Íslandi.

Fundarstjóri í Tækifæri er Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís.

12.30 Erindi í sal í Þjónustu

14.30 Kaffihlé

15.00 Auðkennisappið – rafræn skilríki
Haraldur A. Bjarnason, framkvæmdastjóri Auðkennis

15.15 Tengjum ríkið – Við hvað og til hvers?
Sverrir Geirdal, viðskiptaþróunarstjóri hjá Auðnu, verðandi forstöðumaður Miðstöðvar stafrænnar nýsköpunar (EDIH)

15.30 Verjum stafrænu byltinguna
Guðmundur Arnar Sigmundsson, sviðsstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS

15.45 Tölvuöryggismenning, skiptir hún máli?
Ragnar Sigurðsson, öryggissérfræðingur og meðstofnandi AwareGo

16.00 Tækifæri í skipulagi og árangursríkt samstarf
Hrefna Lind Ásgeirsdóttir, tækni- og þróunarstjóri hjá Stafrænu Íslandi
Eiríkur Nilsson, tæknistjóri Aranja

16.15 Vaxtarmöguleikar Íslands liggja í hugviti og tækni
Jarþrúður Ásmundsdóttir, fagstjóri hugvits, nýsköpunar og tækni hjá Íslandsstofu

16.30 Stafræn skref stofnana – viðurkenning

16.45 Ráðstefnulok

* Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.