Hönnunarkerfi
Hönnunarkerfi Ísland.is er ætlað að samræma nálgun í hönnun mismunandi hluta verkefnisins. Heildarsamræmi í hönnun er mikilvægt fyrir notendaupplifun; bæði ánægju og skilvirkni, en ekki síður til að skapa traust.
Hönnunarkerfið auðveldar okkur að setja nýja þjónustu í loftið á stuttum tíma, og einfaldar rekstur og viðhald stafrænnar þjónustu hins opinbera til muna.
Hönnunarkerfið er opið öllum sem vilja skoða, það er aðgengilegt í Figma. Jafnframt viðhöldum við einingasafninu Ísland UI sem er okkar útfærsla á hönnunarkerfinu í React.
Aðgengileg og aðlaðandi
Hönnun þarf að vera skýr, einföld og aðgengileg. Hún þarf að standast aðgengisstaðla, en við viljum líka hafa viðmótið aðlaðandi vegna þess að útlitið hefur áhrif á upplifun notandans af þjónustunni.
Einfaldleiki
Gagnsæi í viðmóti
Skýr skilaboð, skýr virkni
Endurtekin mynstur
Við reynum að halda samræmi í viðmóti og notendaflæði, og notum sama mynstur í viðmóti fyrir samskonar aðgerðir. Þeim mun færri mynstur því betra, án þess þó að það komi niður á notendareynslu fyrir hvert og eitt tilfelli.
Efnið fyrst
Við reynum eftir fremsta megni að láta efnið stjórna hönnuninni. Við tökum ákvarðanir á forsendum efnisins og þarfa notandans hvað það varðar.
Hönnun (sérstaklega þjónustuhönnun) byggir að miklu leyti á texta. Þess vegna skiptir máli að vinna með texta sem hefur merkingu, ekki lorem ipsum eða annan uppfyllitexta.
Lógó Ísland.is
Þann 10. mars 2020 var nýtt merki og ásýnd Ísland.is kynnt. Nýtt útlit markar upphafið að stórbættri stafrænni þjónustu hins opinbera og endurspeglar kröfur nútímans um sjálfvirkni, einfaldleika og stafrænar lausnir.
Punktarnir í nýju merki tákna net ólíkra tengsla og sýna sambandið á milli einstaklinga, stofnana og gagna. Úr punktunum má auk þess greina bókstafina is, tákn léna á Íslandi, sem vísa í þjónustu á stafrænum vettvangi.
Hlaða niður lógóinu
Fleiri útgáfur af lógóinu og reglur um notkun þess eru aðgengilegar í Figma.
Merki Ísland.is kvikað (smellið á mynd til að spila):
Markmiðið er að einstaklingar og fyrirtæki geti nálgast opinbera þjónustu á einfaldan hátt, á einum stað. Þetta markmið er fangað í nýju slagorði:
Á Ísland.is getur þú smám saman nálgast alla þjónustu á einum stað – þú kemst beint að efninu.