Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Fjarskiptastofa gegnir lykilhlutverki á sviði fjarskipta og netöryggis. Stofnunin hefur eftirlit með fjarskiptamarkaði, netöryggi stafrænna innviða og traustþjónustu. Hún er einnig ráðgefandi samhæfingarstjórnvald fyrir netöryggi mikilvægra innviða.

Fjarskiptastofa vinnur að því að fjarskipti séu aðgengileg, örugg og hagkvæm. Stofnunin eflir viðnámsþrótt mikilvægra innviða gegn netógnum og stuðlar að auknu öryggi og trausti í stafrænum samskiptum og viðskiptum.

Fjarskiptastofa hýsir einnig Eyvöru, hæfnissetur Íslands í netöryggi. Markmið þess er að efla örugga, trausta og aðgengilega stafræna innviði og þjónustu sem samfélagið getur reitt sig á.

Morgunverðarspjall um netöryggi-Mynd

Morg­un­spjall um netör­yggi - Áhættu­stjórnun

Hvaða netógnir skipta mestu máli fyrir þinn vinnustað og hvernig er hægt að stýra áhættunni?

Fjarskiptastofa býður til Morgunspjalls um netöryggi, nýrrar viðburðaraðar á Teams sem er opin öllum.

Sjá nánar

Netöryggi

Netöryggi snýst um að vernda net, kerfi og gögn. Markmiðið er að þau séu örugg, áreiðanleg og tiltæk þegar þeirra er þörf.

Nánar um netöryggi

Laus störf hjá Fjar­skipta­stofu

Hjá Fjarskiptastofu vinnur þú að verkefnum sem skipta samfélagið máli. Fjarskipti og netöryggi eru meðal mikilvægustu innviða landsins og forsenda þess að fólk, fyrirtæki og opinber þjónusta geti treyst á örugg og stöðug samskipti á hverjum degi.

Skoða störf í auglýsingu

Ákvarðanir og úrlausnir

Hér er að finna safn ákvarðana Fjarskiptastofu og aðrar úrlausnir svo sem dómsmál og úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála.

Sjá meira