Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Morgunspjall um netöryggi

4. nóvember 2026

Fjarskiptastofa hleypir af stokkunum nýrri viðburðaröð undir yfirskriftinni Morgunspjall um netöryggi. Markmið viðburðaraðarinnar er að efla þekkingu og umræðu um netöryggi og miðla hagnýtum leiðum til úrbóta.

Fjarskiptastofa hleypir af stokkunum nýrri viðburðaröð undir yfirskriftinni Morgunspjall um netöryggi. Markmið viðburðaraðarinnar er að efla þekkingu og umræðu um netöryggi og miðla hagnýtum leiðum til úrbóta.

Viðburðirnir fara fram á Teams annan hvern mánuð og standa yfir í ca. 60 mínútur. Í hvert sinn er nýtt viðfangsefni tekið fyrir og leiddir saman sérfræðingur af netöryggissviði Fjarskiptastofu og gestur úr atvinnulífinu eða öðrum vettvangi. Þannig tengjum við sérfræðiþekkingu við reynslu úr starfi og skoðum hvernig má takast á við áskoranir í netöryggi.

Með Morgunspjallinu viljum við gera netöryggi aðgengilegra, hvetja til samtals og veita þátttakendum hugmyndir og þekkingu sem nýtast á þeirra vinnustað.

Fyrsta Morgunspjallið verður helgað áhættustjórnun: Hvaða netógnir skipta mestu máli fyrir þinn vinnustað og hvernig er hægt að stýra áhættunni?

Við ræðum hvernig hægt er að greina og meta áhættu í netöryggi, forgangsraða aðgerðum og gera áhættustjórnun að hluta af daglegri starfsemi.

Þátttakendur í okkar fyrsta spjalli eru þær Sigrún Lilja Sigmarsdóttir fagstjóri eftirlits með öryggi net- og upplýsingakerfa hjá Fjarskiptastofu og Ingigerður Guðmundsdóttir öryggisstjóri hjá Mílu.

Dags: 12. nóvember 2026 kl. 09:00
Áætlaður fundartími eru 60 mínútur.
Skráning fer fram á vef Fjarskiptastofu.

Viðburðurinn er opinn öllum sem vilja efla þekkingu sína á netöryggi. Engin sérfræðiþekking er nauðsynleg til að taka þátt.

Í framhaldinu verða tekin fyrir fjölbreytt viðfangsefni sem snerta netöryggi í daglegri starfsemi.

Einnig er hægt að skoða viðburðinn á Facebooksíðu FST.